Annie Mist hraustasta kona heims

Flokkar: Íþróttir
Annie Mist Þórisdóttir sigraði á heimsleikunum í CrossFit annað árið í röð - Mynd: CrossFit Inc


  • Prenta
  • Senda frétt

Annie Mist Þórisdóttir tryggði sér í kvöld sigurinn í kvennaflokki á heimsleikunum í Crossfit í Los Angeles í Bandaríkjunum og varð hún þar með fyrsti keppandinn frá upphafi til þess að vinna mótið tvö ár í röð.

Annie Mist lauk keppni með 1.062 stig en Julie Foucher frá Bandaríkjunum hafnaði í öðru sæti með 977 stig og landa hennar Talaya Fortunato varð þriðja með 973 stig.

Annie Mist fær 250 þúsund dollara í verðlaunafé eða rúmar 32 milljónir íslenskra króna og hlýtur nafnbótina hraustasta kona heims.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku