Alvarlegt brot á öryggisreglum

Tveir ungir hælisleitendur fundust á klósetti í flugvél á Keflavíkurflugvelli í nótt. Mynd: NordicPhotos/AFP.
Tveir piltar komust óséðir um borð í flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í nótt. Vélin var á leið til Kaupmannahafnar og höfðu þeir læst að sér á einu salerni vélarinnar. Vélin seinkaði um nokkra klukkutíma. Piltarnir eru í haldi lögreglu.
Tveir ungir hælisleitendur fundust um borð í vél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í nótt rétt áður en hún hélt til Kaupmannahafnar. Óvíst er hvernig þeim tókst að komast í gegnum stranga öryggisgæslu á flugvellinum.
Fundust á klósettinu
Við reglubundna öryggisskoðun áhafnarinnar þegar hún kom um borð í vélina voru dyr á einu salernanna læstar samkvæmt upplýsingum frá Icelandair. Lögregla var kölluð til og fundust piltarnir inni á klósettinu. Þá tók við öryggisrannsókn á flugvélinni og fór hún í loftið rétt upp úr klukkan fimm í morgun eftir að ný áhöfn hafði verið kölluð til.
Piltarnir eru hælisleitendur og búa á Fit-hostel í Reykjanesbæ, sem er gistiheimili hælisleitenda. Þeir komu hingað til lands fyrr á árinu og eru í hópi þeirra ungu hælisleitenda sem töluvert hafa verið í fréttum undanfarna mánuði. Þeir héldu því fram að þeir væru átján ára eða yngri en samkvæmt aldursgreiningu á vegum Útlendingastofnunar eru þeir eldri en 18 ára.
Í haldi lögreglu
Ekki er vitað hvort þessir piltar sem laumuðu sér um borð í vélina hafa líka reynt að lauma sér um borð í skip Eimskipa í Sundahöfn en nokkrir hælisleitendur hafa reynt að lauma sér um borð í millilandaskip að undanförnu. Rétt er að taka fram að sá eini úr hóp þessarra ungu hælisleitenda sem var barn samkvæmt aldursgreiningunni var ekki handtekinn í nótt. Hann er 16 ára og hefur dvalið hjá fósturfjölskyldu í Reykjavík í um tvo mánuði.
Piltarnir tveir eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir verða yfirheyrðir þegar búið er að útvega túlk.
Skýrist eftir yfirheyrslur
Isavia annast ábyrgð á flugöryggi á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia skýrist ekki fyrr en eftir yfirheyrslurnar hvernig piltunum tókst að komast í gegnum stranga öryggisgæslu á flugvellinum.
Ljóst þykir að verknaðurinn er alvarlegt brot á öryggisreglum. Á heimasíðu Isavia segir að eitt af hlutverkum Isavia sé að tryggja að flugöryggi sé í samræmi við viðurkenndar alþjóðlegar öryggiskröfur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













