Alvarlega slasaður eftir líkamsárás

Karlmaður á áttræðisaldri liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir fólskulega líkamsárás á Þórshöfn í nótt. Árásarmaðurinn, tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður, var handtekinn. Árásin er talin hafa verið uppgjör vegna gamalla mála.
Ungi maðurinn braust inn til mannsins, sem býr einn, og réðst á hann. Að sögn lögreglu var árásin hrottafengin og aðkoman slæm. Maðurinn, sem er sjötíu og eins árs, hlaut bæði útvortis- og innvortis meiðsli og skarst illa í andliti. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Húsavíkur og þaðan á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að sárum hans. Samkvæmt upplýsingum þaðan er hann enn í rannsóknum en ekki talinn í lífshættu. Lögregla fékk tilkynningu um árásina upp úr miðnætti og þegar hún kom á vettvang var árásarmaðurinn enn á staðnum. Hann var handekinn en hefur nú verið sleppt úr haldi. Að sögn lögreglu var hann ölvaður en samvinnufús.
Árásin er talin hafa verið uppgjör vegna gamalla persónulegra mála. Rannsókn málsins er að mestu lokið og ekki þótti þörf á að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







