Altalandi frá því í haust

Jóhanna Sigmundsdóttir með íslenskum nemendum í Smeaheiaskóla.

Mikael Óskarsson 13 ára, sem flutti út til Noregs í haust er nú altalandi á norsku. Fjölmargir íslenskir krakkar stunda nám í Noregi. Þeir eiga rétt á klukkutíma á viku með íslenskum kennara.

Mikael segist bara tekinn úr tíma. Hann sé t.d. í stærðfræðitíma og þá sé kallað á hann til að læra norsku. Hann sé með nokkrar bækur og geri heimanám. Þá sé honum kennd norska og orðin sögð á norsku aftur og aftur.

Mikael er einn af þeim fjölmörgu íslensku börnum sem hafa flutt með foreldrum sínum til Noregs undanfarin ár og sest þar á skólabekk. Hann gengur í skóla á Renneseyju og flutti út í haust.  Í Smeaheiaskóla í Sandnesi er Jóhanna Sigmundsdóttir mætt til ná í íslenska nemendur í tíma til að aðstoða þá við námið. Hún kennir 13 íslenskum börnum í sjö skólum. Í Smeaheiaskóla eru fjórir íslenskir krakkar

Jóhanna segir að allir  íslenskir krakkar sem flytja þangað eigi rétt á klukkutíma í viku með kennara sem tala þeirra móðurmál. Hún kenni þeim ekki að tala íslensku, heldur hjálpa þeim með norskunámið.

 Bræðurnir Orri og Arnaldur hafa aðeins verði í Noregi í fjóra mánuði. Orri segir það ganga mjög vel hjá þeim. Hann sé byrjaður að eignast vini og tala norskuna mjög vel. Arnaldur segist fyrst hafa reynt að tala ensku fyrst. Svo norsk /ensku. Maður geri bara sitt besta. Maður geti ekki bara komið og talað norsku. Maður þurfi að leggja hart að sér.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku