Allt að 25 þúsund lítrar láku út
Fyrst birt: 17.01.2012 10:05, Síðast uppfært: 17.01.2012 11:15

Mynd: Leifur Bremnes.
Búið er að ná olíuflutningabílnum sem fór út af í Hestfirði upp á veginn. Hann verður settur upp á flutningabíl og fluttur á Ísafjörð. Óttast er að allt að 25 þúsund lítrar hafi lekið úr bílnum.
Megnið af því eldsneyti sem lak úr bílnum hefur lekið út í sjó.
Lokið var við að dæla úr tankinum rétt fyrir klukkan níu í morgun og bíllinn náðist upp skömmu fyrir klukkan tíu. Djúpvegur milli mynnis Hestfjarðar og Súðavíkur var svo opnaður aftur fyrir umferð klukkan tíu. Hins vegar er viðbúið að þeir sem fara þar um verð fyrir töfum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Búið að dæla úr bílnum
Hættuástand í Hestfirði 





