Allra augu beinast að Grikklandi



  • Prenta
  • Senda frétt

Þjóðarleiðtogar úti um allan heim, fjárfestar og bankastjórar bíða í ofvæni úrslita þingkosninganna í Grikklandi í dag, sjaldan hafa kosningar í vestrænu ríki á síðari tímum valdið jafn miklum skjálfta.

Eftirvæntingin mikla ríkir um það hvort Nýi lýðræðisflokkurinn, sem er helsti hægriflokkur Grikklands, eða Syriza, sem er flokkabandalag vinstrimanna, fær meirihluta atkvæða, en samkvæmt nýjustu könnunum, bæði opinberum, og sem gerðar hafa verið með leynd, er ekki hægt að spá með vissu um úrslitin.

Nýi lýðræðisflokkurinn vill þiggja björgunarlán Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins, 130 milljarða evra, með stöngum skilmálum um niðurskurð og skattahækkanir. Syriza vill hafna láninu, og ekki skera niður, enda leiði það til örbirgðar alþýðu manna í Grikklandi. Hvorugt stjórnmálaaflið vill leggja evruna fyrir róða og taka upp drökmu á ný.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hvatti í gær Grikki til að kjósa flokka sem vilja þiggja björgunarlánið með óbreyttum skilmálum lánardrottna.

Sumir fréttaskýrendur taka svo djúpt í árinni að staðhæfa að kosningarnar í Grikklandi í dag snúist ekki aðeins um framtíðaraðild Grikkja að Efnahags-og myntbandalagi Evrópu, heldur bandalagið sjálft, evruna sjálfa. Sigri Syriza verði hrun á verðbéfamörkuðum á morgun. Taki Grikkir upp drökmu á ný aukist þrýstingur svo mjög á hagkerfi Ítalíu og Spánar að þau bresti, stjórnvöld í báðum ríkjum neyðist til að leita hófanna um mikil neyðarlán.

Robert Zoellick, fráfarandi framkvæmdastjóri Alþjóða bankans, segir allan heiminn einblína á Aþenu. Evran sé í hættu, hrynji þessi gjaldmiðill verði heimskreppa. Zoellick kemst svo að orði í viðtali við Observer í dag að upp sé runnið nýtt Lehmans-andartak. En gjaldþrot fjárfestingabankans Lehmans Brothers í New York í september 2008 varð upphafið að fjármálakreppu, og versta efnahagssamdráttarskeiði í heiminum frá því kreppunni miklu á öldinni sem leið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku