Alfreð tryggði Helsingborg stig
Fyrst birt: 09.07.2012 20:42, Síðast uppfært: 09.07.2012 20:43

Alfreð Finnbogason tryggði Helsingborg stig í dag
Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Helsingborg í 1-1 jafntefli liðsins gegn Gautaborg á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Alfreð, sem lék allan leikinn fyrir Helsingborg, skoraði jöfnunarmark liðsins undir lok leiks. Hjörtur Logi Valgarðsson var allan tímann í liði Gautaborgar.
Þá var Eiður Aron Sigurbjörnsson allan tímann á bekknum hjá Örebro sem vann Malmö 2-1 á heimavelli.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












