Alex til Paris Saint-Germain

Alex í leik með Chelsea á síðasta tímabili

Knattspyrnumaðurinn Alex frá Brasilíu er genginn til liðs við franska liðið Paris Saint-Germain en félagið mun hafa keypt leikmanninn á rúmar fjórar milljónir punda frá enska félaginu Chelsea.

Félag Heiðars Helgusonar, Queens Park Rangers, var einnig á höttunum eftir leikmanninum en hann kaus að fara frekar til Frakklands. Carlo Ancelotti, þjálfari PSG liðsins, þekkir vel til Alex þar sem leikmaðurinn lék undir hans stjórn þegar Ancelotti var knattspyrnustjóri Chelsea.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku