Aldrei eins margar eldingar í gosi

Mynd: Ómar Ragnarsson.

Aldrei hefur verið eins mikið um eldingar í eldgosi á Íslandi eins og í gosinu sem nú stendur yfir. Á einni klukkustund í dag urðu 2.198 eldingar í mekkinum en til samanburðar mældust mest 22 eldingar á einni klukkustund í Eyjafjallajökulsgosinu. Á fyrstu átján klukkustundum gossins mældust 15 þúsund eldingar en á 39 dögum í Eyjafjallajökulsgosinu mældust 790 eldingar með sama mælikerfi. Rannsóknir benda til þess að eldingar verði þegar mökkurinn rís það hátt að vatn í honum frýs.

Settur hefur verið upp sérstakur vefur sem sýnir eldingar í Grímsvatnagosi 2011.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku