Ákvörðunin er ekki forstjóra LSH

Sjúkraliðar með sérnám í hjúkrun aldraðra gera alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun Landsspítalans að loka líknardeildinni á Landakoti. Í ályktuninni segir: „Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauðakross Íslands gaf búnað á allar stofur, þar með talin sjúkrarúm af vönduðustu gerð.

Margir komu að opnun deildarinnar, bæði með einstaklingsframtaki og með fjárveitingu úr opinberum sjóðum, það á því ekki að vera í höndum forstjóra Landspítalans að taka svo afdrifaríka ákvörðun sem lokunin er.“


Í tilkynningunni er farið fram á að ákvörðunin verið afturkölluð af velferðarráðherra.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka