Á fundi Samtaka atvinnulífsins í dag var rætt um aðgerðir til uppbyggingar atvinnulífs í landinu. Forseti ASÍ hélt erindi á fundinum og gerði kröfu um fordómalaust uppgjör við fortíðina með áherslu á siðferði og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Hann sagði að réttlátari og skilvirkari lausnir fyrir heimili í miklum greiðslu- og skuldavanda væru nauðsynlegar samhliða bráðaaðgerðum í atvinnumálum.
Dráttur á Icesave-málinu sé að einangra okkur frá öllum fjarmagnsmörkuðum sem valdi því að við getum hvorki fjármagnað ný verkefni í stóðiðju eða orkuframkvæmdum né endurfjármagnað lán hjá ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Þetta sé kerfisbundið að draga úr einkaneyslu og landsframleiðslu, auki atvinnuleysi og svo framvegis. Þannig getum við lent í vítahring.
Hann sagði hræðslu við ákvarðanatöku skemma fyrir uppbyggingunni. Atvinnulífinu blæði út ef ekkert sé að gert. Það einkenni Alþingi að þar séu álitamál sem eru pólitískt erfið. Ríkisstjórnin hafi lýst því yfir fyrir átta mánuðum hvað hún vilji gera en sé ekki ennþá búin að því. Þetta sé ekkert annað en vandræðagangur.
frettir@ruv.is