Ákvörðun Læknafélagsins ótrúleg

Álfheiður Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir það með ólíkindum, að Læknafélagið ætli ekki að afhenda landlækni upplýsingar um brjóstastækkanir, fyrr en Persónuvernd hefur úrskurðað um málið.
Álfheiður segir að engin kona eigi að þurfa að ganga með PIP-brjóstapúða deginum lengur en hún sjálf óskar.
Velferðarnefnd tekur PIP-brjóstapúðamálið til umfjöllunar á fundi sínum í morgun. Á meðal þeirra sem komu fyrir nefndina voru fulltrúar Landlæknis, Félags íslenskra lýtalækna og Læknafélags Íslands og Kolbrún Jónsdóttir, talsmaður kvenna sem eru með PIP-sílíkonpúða í brjóstum.
Formaður nefndarinnar segir ljóst að konurnar hafi beðið alltof lengi eftir svörum. Hún telur að við séum langt á eftir nágrannaþjóðunum og allt of langur tími hafi liðið án viðbragða. Það þurfi meira til en ómskoðunina sem þær geti farið í nú.
Stjórnvöld ætla að láta fjarlægja þá púða sem eru farnir að leka, aðra ekki. Álfheiður segir að stjórnvöld ættu hins vegar að láta fjarlægja alla púðana. „Það verður að vera þannig að menn horfi fyrst til heilbrigðissjónarmiða, komi til móts við það að verja heilsu þessara kvenna, en líti síðan til peningamálanna á eftir. Þannig virkar okkar heilbrigðisþjónusta ef eitthvað bjátar á, og hún á að gera það líka í þessu.“
Læknafélagið lýsti því yfir á föstudag að það ætli ekki að veita Landlæknisembættinu upplýsingar um allar konur, sem hafa farið í brjóstastækkun frá árinu 2000, fyrr en Persónuvernd hefur úrskurðað hvort það sé heimilt.
„Ég tel þetta með ólíkindum. Það er bara lykilatriði að landlæknir, sem á að bera ábyrgð á því að safna saman heilbrigðisupplýsingum fyrir þessa þjóð og fyrir heilbrigðisþjónustuna, hann fái þær upplýsingar sem hann kallar eftir. Persónuvernd í þessu tilfelli, gagnvart landlækni, á að mínu mati ekki við.“
Málið verður tekið fyrir á Alþingi á morgun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Aðrir læknar notuðu PIP púðana
Vill upplýsingar um brjóstaaðgerðir
Kæra eiginkonu lýtalæknis
Landlæknir fundar með læknum





