Ákært fyrir fjársvik í Skúlagötumáli

Sérstakur saksóknari hefur ákært Aron Karlsson fyrir fjársvik vegna sölu á fasteign við Skúlagötu til kínverska sendiráðsins. Málið hefur verið í rannsókn hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra í á þriðja ár. Málið komst í hámæli í fjölmiðlum í janúar árið 2010.
Þá seldu feðgarnir Karl Steingrímsson, kenndur við Pelsinn, og sonur hans Aron, kínverska sendiráðinu Skúlagötu 51 í Reykjavík fyrir 870 milljónir króna. Þetta gerðu feðgarnir á sama tíma og bönkum, sem áttu veð í húseigninni, var kynnt 575 milljóna króna tilboð frá indversku félagi í fasteignina.
Húseignin var yfirveðsett Íslandsbanka, Arion banka og þrotabúi Glitnis, og samið var um uppgjör við bankana á grundvelli tilboðs Indverjanna, en húsið var svo fært yfir í annað félag í eigu feðganna og síðan selt Kínverjunum fyrir mun hærra verð. Feðgarnir voru grunaðir um að hafa stungið undan um þrjú hundruð milljónum króna.
Málið hefur síðan verið til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra en fluttist ásamt öðrum málum yfir til embættis Sérstaks saksóknara í september. Á mánudaginn gaf embættið út ákæru á hendur Aroni og fasteignafélagi hans AK fasteignir ehf. Sakarefnið er fjársvik, en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ákæran ekki verið birt Aroni.
Við rannsókn málsins var lagt hald á hátt í hundrað milljónir króna af meintum ávinningi, gerð húsleit á þremur stöðum og tveir menn auk feðganna yfirheyrðir. Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um niðurstöðu rannsóknarinnar á þætti Karls í fléttunni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














