AG Kaupmannahöfn bikarmeistari

AG Köbenhavn varð í dag danskur bikarmeistari annað árið í röð

AG Kaupmannahöfn vann í dag danska bikarmeistaratitilinn í handknattleik með því að vinna Álaborg 32-26 í úrlsitaleik. Þetta er þriðja árið í röð sem Kaupmannahafnarliðið verður danskur bikarmeistari.

Íslensku leikmennirnir í AG Kaupmannahöfn skoruðu helming marka liðsins í dag eða 16 alls. Guðjón Valur Sigurðssson skoraði átta mörk fyrir AG í leiknum og var næstmarkahæstur á eftir Mikkel Hansen sem var með níu mörk, Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk og fyrirliðinn Arnór Atlason þrjú en Snorri Steinn Guðjónsson komst ekki á blað.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku