Áfram kröftugt gos næstu daga

Sérfræðingar gera ráð fyrir að kröftugt gos standi enn í nokkra daga með miklu gjóskufalli. Biksvartamyrkur er á Kirkjubæjarklaustri. Gríðarlegt öskufjúk og hættir fólk sér ekki milli húsa. Nokkur hundruð metra skyggni er austan Skeiðarársands.

Bændur í nágrenni Kirkjubæjarklausturs sem fréttastofa hefur rætt við segja að úti sé nánast eins og að það sé nótt. Varla sést á milli húsa og einn bóndinn líkti ástandinu við að svartir plastpokar hefðu verið settir fyrir gluggana. Sá er búinn að missa að minnsta kosti eina kind og eitt lamb í hamförunum.

Ekki hafa allir haft tök á að koma fé inn og einn þeirra brá á það ráð að setja heyrúllur út og koma svo fyrir rennandi vatni úr garðslöngu til að tryggja aðgengi fjárins að hreinu vatni. Nú er farið að hvessa þar og við það smýgur askan bæði inn á bæina og í fjárhúsin.

Styrkur eldgossins í Grímsvötnum jafnast nú á við gosið í Eyjafjallajökli þegar það var í hámarki. Eldgosið nú hefur þó minnkað mikið frá því það náði hámarki í fyrrinótt. Vegurinn frá Vík austur að Skeiðarársandi er enn lokaður.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku