Afganar ævareiðir Bandaríkjamönnum

Frá mótmælaaðgerðunum í Jalalabad í Afganistan í dag. Mynd: Nordic Photos/AFP
Mikil reiði er í Afganistan vegna uppljóstrana um að bandarískir hermenn þar í landi hafi brennt helgirit múslima. Afsökunarbeiðni varð ekki til að afstýra mótmælum í dag þar sem 4 létu lífið og tugir særðust.
Bandarískir hermenn í Bagram-flugstöðinni í Kabúl, höfuðborg Afganistans, brenndu eintök af Kóraninum til að koma í veg fyrir að fangar þar gætu notað helgiritin til að koma skilaboðum sín á milli. Bandaríkjamenn hafa beðist afsökunar. Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði í dag að framkoma af þessu tagi væri með öllu ólíðandi. Talsmaður utanríkisráðuneytisins í Washington tók í sama streng og yfirmaður bandaríska heraflans í Afganistan ítrekaði að rannsókn á málinu væri hafin. Allt yrði gert til að koma í veg fyrir að svona nokkuð endurtæki sig.
En allt hefur komið fyrir ekki. Enn voru mótmæli í Kabúl og víðar í dag, annan daginn í röð. Reiðir Afganar sögðu að Bandaríkjamenn væru samir við sig. Þeir hefðu vanvirt Kóraninn margoft, hvort heldur sem er í Afganistan eða Guantanamo á Kúbu. Slagorð voru hrópuð gegn núverandi og fyrrverandi Bandaríkjaforsetum og Karzai, forseta Afganistans.
Vegna mótmælanna í dag þótti vissast að loka bandaríska sendiráðinu í Kabúl í dag og starfsfólki þar bannað að ferðast um landið. Í fyrra létu 24 lífið í mótmælum í Afganistan eftir að harðlínuprestur í Bandaríkjunum brenndi Kóraninn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







