Áður óþekkt jarðhitasvæði fundið
Fyrst birt: 13.07.2011 21:39, Síðast uppfært: 14.07.2011 05:57
Hlaupið úr Köldukvíslarjökli í fyrrinótt kom úr áður óþekktu háhitasvæði í vesturhluta Vatnajökuls. Þetta kom í ljós við flug vísindamanna yfir jökulinn í gærkvöld.
Á myndum sem teknar voru úr flugvél í gær sést greinilega að hlaupið kom niður farveg árinnar Sveðju út í Hágöngulón en ekki niður Köldukvísl eins og talið var í fyrstu. Helgi Björnsson jarðvísindamaður segir að upptökin séu á jarðhitasvæði sem ekki hafi verið þekkt til þessa.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







