Adele átti kvöldið á Grammy

Adele með fangið fullt af Grammy styttum Mynd: NordicPhotos/AFP
Enska söngkonan Adele sópaði að sér verðlaunum á Grammy-tónlistarverðlaununum í Los Angeles í nótt. Plata hennar 21 var bæði valin hljómplata ársins og besta popp-platan og Rolling in the Deep besta lagið en alls fékk Adele sex Grammy-styttur.
Söngkonan kom líka fram í fyrsta skipti eftir langt hlé sem hún varð að taka sér vegna læknismeðferðar.
Hljómsveitin Foo Fighters átti bestu rokkplötuna og Kanye West bestu rapp-plötuna. Þá fékk hljómsveitin Bon Iver Grammy verðlaun sem bestu nýliðarnir.
Foreldrar Amy Winehouse veittu viðtöku verðlaunum sem dóttir þeirra sáluga fékk fyrir besta popp-dúettinn, en fyrir andlátið söng hún lagið Body and Soul með Tony Bennett inn á plötu.
Whitney Houston sem lést í gær var minnst á hátiðinni - Jennfer Hudson söng eitt hennar þekktustu laga og fleiri sem fram komu vottuðu Houston virðingu sína.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
MannlífTilkynna um bilaða upptöku







