Aðeins jafntefli hjá KR-ingum

KR og Grindavík skildu jöfn, 1-1 í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Grétar Sigfinnur Sigurðarson skoraði fyrir KR en Óli Baldur Bjarnason jafnaði metin fyrir Grindavík með glæsilegu marki úr bakfallsspyrnu.

KR hefur eftir leikinn 39 stig, rétt eins og ÍBV sem er í 2. sæti, en liðin mætast einmitt í næstu umferð í Vestmannaeyjum. KR á svo leik til góða gegn Keflavík 22. september.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku