Aðalheiður úr leik í Azerbaídsjan

Landsliðskonan Aðalheiður Rósa Harðardóttir úr Breiðabliki féll úr leik í annarri umferð í kata á Evrópumótinu í karate undir 21 árs í Bakú í Azerbaídsjan í dag. Átján keppendur voru skráðir í hennar flokki.
Aðalheiður sat hjá í fyrstu umferð en mætti ungversku stúlkunni Z.Anti í annarri umferð. Þar beið Aðalheiður lægri hlut eftir jafna viðureign. Sú ungverska vann einnig andstæðing sinn í átta manna úrslitum en tapaði í undanúrslitum og því fékk Aðalheiður ekki uppreisnarviðureign og tækifæri til að keppa um þriðja sætið.
Nóg verður að gera hjá Aðalheiði á næstunni en hún mun keppa á Íslandsmeistaramótinu og á opnu móti í Malmö í mars og á Norðurlandameistaramótinu í apríl.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







