Á hinum eilífa vegi frumflutt

Langholtskirkja. Mynd: Wikimedia Commons.
Kór Langholtskirkju frumflytur nýtt verk eftir Mist Þorkelsdóttur í Langholtskirkju kvöld. Upphaf verksins er prelúdía í rondóformi og er notað sem kynningarlag í Evrópusöngvakeppninni.
Verkið heitir In via aeterna eða Á hinum eilífa vegi. Textinn er fenginn úr Davíðssálmi 139 Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig. Við flutning verksins nýtur kórinn stuðnings Gradualekórs kirkjunnar auk tveggja einsöngvara. Hugmynd tónskáldsins, Mistar Þorkellsdóttur, er að verkið kallist á við hitt verkið sem kór Langsholtskirkju flytur á tónleikunum sem er Te Deum, fyrir kór, einsöngvara og kammersveit og er eftir Marc-Antonie Charpentier. Verkið er samið á síðari hluta 17. aldar og er sagt vera fullt af gleði og birtu. Einsöngvarar eru þrettán. Flestir kórfélaganna hafa lokið eða stunda söngnám. Kammersveit leikur með og konsertmeistari er Júlíana Elín Kjartansdóttir, Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







