50 ár í naglaframleiðslu
Fyrst birt: 16.01.2012 09:41, Síðast uppfært: 16.01.2012 09:41

Hjá Límtré Vírnet er framleitt nálægt 50 milljónum nagla árlega.
Naglar eru hið mesta þarfaþing, hvort sem það eru trénaglar eða járnnaglar. Margir telja að íslenskur járniðnaður eigi upphaf sitt í Mýrarsýslu og það er því kannski engin tilviljun að í Borgarnesi er eina naglaverksmiðjan á Íslandi.
Fyrirtækið heitir nú Límtré Vírnet en Vírnetssaumur hefur verið framleiddur frá 1956. Þar hafa verið þróaðar ýmsar tegundir nagla en nú eru framleiddar þar milli 30 og 40 tegundir. Landinn fylgist með naglaframleiðslu undir leiðsögn Agnars Ólafssonar sem hefur staðið við naglavélarnar í tæpa hálfa öld.
Vertu vinur Landans á Facebook.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







