4,7 milljarða halli hjá borginni
Fyrst birt: 30.04.2012 14:50, Síðast uppfært: 30.04.2012 16:00
Flokkar: Innlent, Efnahagsmál

Reykjavíkurborg var rekin með tæplega 4,7 milljarða halla á síðasta ári samkvæmt ársreikningi Reykjavíkurborgar en áætlanir gerðu ráð fyrir 3,4 milljörðum í afgang. Þá var borgarsjóður rekinn með ríflega 2,8 milljarða króna halla en áætlanir gerðu hins vegar ráð fyrir að reksturinn yrði í jafnvægi.
Dagur B. Eggertsson staðgengill borgarstjóra sagði þegar hann mælti fyrir reikningnum að skýringuna væri aðallega að finna í gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga upp á um fjóra milljarða króna í kjölfar nýrra kjarasamninga. Sjálfstæðismenn gagnrýna þessa útkomu harðlega. Meðal annars hafi bæði rekstrarkostnaður og skuldir aukist mikið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













