4.328 sóttu um hreindýraveiðileyfi
Fyrst birt: 23.02.2012 11:30, Síðast uppfært: 23.02.2012 12:34

Alls bárust 4.328 umsóknir um leyfi til að veiða hreindýr á þessu ári, en umsóknarfrestur rann út um miðjan mánuðinn.
Leyfilegt er að fella 1.009 dýr, 588 tarfa og 421 kú á veiðitímanum sem nær frá 1. ágúst til 15. september. Dregið verður úr hreindýraveiðileyfum á laugardag í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands. Hægt verður að fylgjast með útdrættinum á veraldarvefnum, en hann hefst klukkan 14.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







