400 e-töflur á Akureyri

Lögreglan á Akureyri fann rúmlega 400 e-töflur í húsleit á Akureyri í gær. Einn var handtekinn vegna málsins og yfirheyrður. Hann játaði að eiga töflurnar og að hafa ætlað þær til sölu. Málið er í rannsókn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku