36% vilja Ólaf Ragnar áfram
Fyrst birt: 27.01.2012 12:27, Síðast uppfært: 04.04.2012 16:25

Rúmur þriðjungur aðspurðra í nýjum þjóðarpúlsi Gallup vill að Ólafur Ragnar Grímsson gegni embætti forseta Íslands áfram, fimmta kjörtímabilið í röð.
Fólk var spurt hver það vildi að gegndi embætti forseta Íslands á næsta kjörtímabili. Af þeim sem tóku afstöðu nefndu 36% prósent Ólaf Ragnar Grímsson, núverandi forseta. 18% nefndu Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi dómsmálaráðherra, og 5% Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins. Rúm 40% nefndu einhvern annan. Úrtakið var 2700 manns, og svarhlutfall um 65%. Ríflega helmingur þeirra tók afstöðu til spurningarinnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







