25 þúsund mótmæla í Grikklandi

Um tuttugu og fimm þúsund mótmælendur komu saman utan við þinghús Grikkja í Aþenu í dag. Mótmælendum lenti saman við lögreglu sem beitti táragasi til að hemja þá.

Innandyra ræða þingmenn um niðurskurðar og aðhaldsaðgerðir sem eru skilyrði fyrir því að Grikkir fái lána frekari lán frá Evrópusambandinu
og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þingmenn greiða atkvæði um aðgerðirnar í kvöld eða nótt. Hafni þingið niðurskurðinum segja ráðamenn í Grikklandi að stefni í algera upplausn.



Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Efnahagsmál

Tilkynna um bilaða upptöku