„Vangreiðslugjald“ vekur spurningar

Frá Hörpu á menningarnótt í sumar. Mynd: harpa.is

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir álitamál hvort löglegt sé að einkafyrirtæki sekti fólk fyrir að greiða ekki í bílageymsluhús Hörpu. Bæði hann og Neytendastofa skoða málið.

Þeir sem koma á síðustu stundu á leið á tónleika í Hörpu gera sér líklega grein fyrir því að gjaldskylda er í bílastæðahúsi í kjallaranum. Fæstir átta sig þó líklega á því að þeir þurfa að greiða 4.900 króna vangreiðslugjald ef þeir trassa að greiða fyrir stæðið. Talsmanni neytenda hefur borist kvörtun frá manni sem var gert að greiða sekt eða vangreiðslugjald eins og það er nefnt á rukkuninni. Hann segist vera að skoða lagalega hlið málsins, en stutt er síðan hann fékk málið til meðferðar.

Bílakjallarinn er í einkaeign ríkis og borgar en þar sem hann er einkaeign eiga umferðarlög ekki við um gjaldtökuna þar. Það er fyrirtækið 115 Security ehf sem innheimtir sektirnar.  Gísli Tryggvason segir að einkafyrirtægi geti ekki lagt á sektir eða viðurlög, þótt þeir kalli sektina vangreiðslugjald. Stóra álitamálið sé svo hvort gjaldið hafi verið nægjanlega kynnt fyrir neytendum. Álitamál sé hvort vangreiðslugjaldið sé sanngjörn fjárhæð. Einnig megi velta fyrir sér hvort óháð fyrirtæki ætti kannski að staðfesta greiðslur fyrir svona bílastæðahús og bílastæði eins og víða sé farið að tíðkast.

Gísli segist fljótlega eiga fund með forráðamönnum 115 Security. Ljóst sé að ekki sé hægt að komast hjá reglunum með því að kalla hlutina einhverju öðru nafni. Hann þurfi að ræða betur við fyrirtækið um fyrirkomulagið og fjárhæðina, vegna þess að hann sé ekki viss um að fyrirtækið geti haft sjálfdæmi um sektarfjárhæðina og fyrirkomulagið.

Forráðamenn 115 security segjast hins vegar hafa lögfræðiálit sem sýni að þeim sé heimilt að beita sektum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku