„Kreppan er búin“ segir hagfræðingur



  • Prenta
  • Senda frétt

Hagvöxtur hér á landi er með því mesta sem gerist á vesturlöndum og allsstaðar sjást merki um uppsveiflu, segir Gylfi Zoega hagfræðiprófessor. Kreppan sé búin, þó lífskjörin séu ekki eins góð og árið 2007.

Frá hruni hefur landsframleiðsla Íslands aukist um 3,7% sem er meira en meðalaukning ríkja Evrópusambandsins.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor, segir það hafa farið framhjá flestum í daglegu þrasi að uppsveifla í íslensku efnahagslífi hófst um mitt ár 2010, síðan hafi verið hagvöxtur, á síðasta ári um 3%, sem sé með því mesta sem gerist á Vesturlöndum.

„Hann orsakast af bæði aukinni fjárfestingu, einkaneyslu, útflutningi - það er að segja ferðaþjónusta og sjávarútvegur. Við sjáum allsstaðar merki um þessa uppsveiflu sem er að magnast hér á landi. Atvinnustigið er að batna, kaupmáttur launa er að vaxa. Kaupmáttur núna er svipaður og árið 2005, landsframleiðsla svipuð og 2006 á föstu verðlagi. Svo við erum í nokkuð góðum málum og allt að batna frá degi til dags.“

Við þetta bætist að skuldir heimila og fyrirtækja hafa lækkað og það sé búið að skilgreina hver á stóran hluta atvinnulífsins. Hagkerfið sé mun heilbrigðara en það var.

„Við sjáum allsstaðar merki um að þetta samfélag er að ná sér er að ná sér á strik mjög vel.“

Gylfi svarar því játandi þegar spurt er hvort kreppan sé búin.

„Já, hún er búin fyrir þó nokkru síðan. En lífskjörin eru ekki eins góð og þau voru 2007 vegna þess að þá lifðum við á lánum, það er að segja, það er auðvelt að halda uppi lífskjörum til skamms tíma með því að taka gríðarleg lán í útlöndum. En núna, þau lífskjör sem við höfum eru þau sem landið hefur efni á, og er um leið að greiða niður erlend lán.“

Betur hefur gengið hér en í Evrópu en þar eru blikur á lofti.

Gylfi segir Ísland í vari fyrir hugsanlegum áföllum á fjármálamörkuðum erlendis vegna gjaldeyrishaftanna, en kreppa þar muni þó hafa áhrif á verðmæti útflutningsafurða okkar, og þar með lífskjör.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku