Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Í ár eru liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara. Upp á áfangann er haldið með margvíslegum hætti.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur tekið höndum saman við Ríkisútvarpið og fengið ungmenni til að lesa 10 þjóðsögur sem finna má í þjóðsaganasafni Jóns Árnasonar.
Raddir - samtök um vandaðan upplestur studdu verkefnið með því að benda á efnilega lesara í hópi ungs fólks.
Sögurnar eru af margvíslegum toga, fyndnar og furðulegar, óhugnanlegar, ráðgefandi og sumar óvæntar. Þær eru löngu orðnar sígild lesning á landinu og höfða til allra aldurshópa.