Sinfóníutónleikar

Nærmynd - Hildur Guðnadóttir

Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík þar sem boðið er upp á heillandi kvöldstund með tónskáldinu Hildi Guðnadóttur og brugðið upp myndum af starfi hennar á síðustu árum.

Hildur er eitt fremsta kvikmyndatónskáld samtímans og margverðlaunuð fyrir störf sín, hlaut til dæmis Emmy- og Grammyverðlaun árið 2019 fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Chernobyl og Óskarsverðlaun árið 2020 fyrir tónlistina við kvikmyndina Joker.

Á tónleikunum leiðir listakonan sjálf dagskrá þar sem hún segir frá verkum sínum, áhrifavöldum og glímunni við styrkja frásögn kvikmyndarinnar með áhrifamikilli tónlist. Efnisskráin er samsett af tónlist Hildar sjálfrar, t.d. úr kvikmyndunum Joker, Tár og Haunting in Venice. Einnig verður flutt tónlist sem haft hefur mikil áhrif á Hildi í gegnum tíðina, m.a. úr smiðju Arvo Pärt, Ryuichi Sakamoto, Mika Levi, Kaija Saariaho og Alvin Lucier.

Einleikarar: Hildur Guðnadóttir og Sam Slater.

Stjórnandi: Daníel Bjarnason.

Kynnir: Ása Briem.

Á efnisskrá:

-Blind Sarabande og Overcast eftir Hildi Guðnadóttur.

-Silver Streetcar for the Orchestra fyrir einleiksþríhorn eftir Alvin Lucier.

-The Song That Never Was eftir Hildi Guðnadóttur.

-Nymphea Reflections, II. Fero eftir Kaiju Saariaho.

-Meginstef úr The Revenant eftir Ryuichi Sakamoto.

-Allegro úr Tár eftir Hildi Guðnadóttur.

-Confession og Pipes úr A Haunting in Venice eftir Hildi Guðnadóttur.

-Fratres eftir Arvo Pärt.

-Love úr Under the Skin eftir Mica Levi.

-Meeting Bruce Wayne og Bathroom Dance úr Joker eftir Hildi Guðnadóttur.

Birt

4. júní 2026

Aðgengilegt til

4. júlí 2026

Sinfóníutónleikar

Þættir

,