Orðin sem við skiljum ekki

Tíminn sem við snertum

Af hverju er tíminn svona mikið ólíkíndatól og af hverju eigum við svona erfitt með átta okkur á honum? Er það vegna þess hann er eitt af þessum hugtökum sem eru svo umfangsmikil heilinn okkar skynjar ekki stærðina? Eða er það vegna þess upplifun okkar á tímanum er sífellt breytast eftir aldri og aðstæðum?

Í fyrsta þætti seríunnar Orðin sem við skiljum ekki beinir Þorvaldur S. Helgason sjónum tímanum með því skoða samspil jarðsögulegs og mannsögulegs tíma. Viðmælendur þáttarins eru Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari, og Andri Snær Magnason, rithöfundur. Lesari: Jóhannes Ólafsson.

Umsjón: Þorvaldur S. Helgason

Tónlist: Högni Egilsson.

Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason.

Frumflutt

10. apríl 2021

Aðgengilegt til

9. júní 2024
Orðin sem við skiljum ekki

Orðin sem við skiljum ekki

Orð geta verið stór og orð geta verið smá. Þau geta verið nógu kraftmikil til skapa heilan heim og þau geta verið svo hversdagsleg við tökum ekki einu sinni eftir þeim. Orð geta líka verið svo umfangsmikil það tekur heilu kynslóðirnar skilja þau til hlítar. Þetta eru orðin sem við skiljum ekki.

Í bókinni Um tímann og vatnið fjallar Andri Snær Magnason um þær grundvallarbreytingar sem munu verða á mannlífi og jarðlífi á næstu hundrað árum vegna hnattrænnar hlýnunar. Þessar breytingar eru „flóknari en flest það sem hugurinn er vanur fást við, stærri en öll fyrri reynsla okkar, stærri en tungumálið.“ Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Þorvaldur S. Helgason fjallar um tímann og vatnið, kafar dýpra í helstu umfjöllunarefni bókarinnar og ræðir við vísindamennina, heimspekingana og aðgerðasinnana sem hafa helgað líf sitt því rannsaka málefni sem eru stærri og flóknari en orð lýst.

Umsjón: Þorvaldur S. Helgason

Tónlist: Högni Egilsson.

Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason

Þættir

,