Bjarni Thor bæjarlistamaður Garðabæjar,Takk fyrir að vera til fyrirmyn
MANNLEGI ÞÁTTURINN ÞRIÐJUDAGUR 18.JÚNÍ
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG MARGRÉT BLÖNDAL
Sérfræðingurinn er á dagskrá Mannlega þáttarins í dag. Að þessu sinni er það augnlæknirinn Ólafur Björnsson og við ætlum að ræða um augnheilsu og einnig bera undir Ólaf nokkrar spurningar sem við fengum sendar frá hlustendum.
Ýmsar heiðranir og viðkenningar voru veittar víða um land í gær. Við getum nefnt að fjórtán fengu heiðursmerki hinnar íslensku Fálkaorðu og Helgi Björnsson er borgarlistamaður Reykjavíkur og svo útnefndu Garðbæingar sinn bæjarlistamann. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari hlaut þann heiður og við heyrum í Bjarna hér á eftir.
Hvatningarátakið "Takk fyrir að vera til fyrirmyndar" hófst í gær. Hugmyndin af átakinu er sprotin af þakklæti til Frú Vigdísar Finnbogadóttur og íslensku þjóðarinnar en um þessar mundir eru 40 ár síðan að Íslendingar kusu hana fyrst kvenna til að gegna embætti þjóðarleiðtoga í heiminum.
Átakið gengur út á að hvetja landsmenn til að þakka þeim sem þeir telja vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Markmiðið er að landsmenn skrifi kveðju til þeirra sem þeir telja vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Meira um þetta hér á eftir.