Ljósufjöll

Annar þáttur

Ljósufjöll fjallar um flugslysið í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi í apríl 1986. Fimm manns fórust en tveimur var bjargað eftir tíu og hálfrar klukkustundar bið í flakinu.

Flugvélin TF-ORM á leið frá Ísafirði til Reykjavíkur hafði brotlent í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi. Við tók margra klukkustunda bið eftir björgun. Fljótlega tókst staðsetja vélina en björgunarsveitarfólk átti mjög erfitt með komast á slysstað vegna aftakaveðurs og erfiðra aðstæðna. Umsjón: Halla Ólafsdóttir. Tæknimaður: Einar Sigurðsson.

Frumflutt

10. apríl 2020

Aðgengilegt til

11. jan. 2025
Ljósufjöll

Ljósufjöll

Þann 5. apríl 1986 héldu sjö manns í flugi frá Ísafirði til Reykjavíkur, en ferðin fór öðruvísi en lagt var upp með þegar vélin fórst í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi. Fimm týndu lífi en tveir lifðu af á ótrúlegan hátt eftir margra klukkustunda bið eftir björgun í aftaka veðri og erfiðum aðstæðum. Í þremur þáttum er fjallað um flugið á þessum tíma, veðrið í Ljósufjöllum, slysið, áskoranir og sorg en líka hvað hefur breyst síðan lagt var upp í þessa örlagaríku flugferð. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

,