Fréttir kl.12:20

Hádegisfréttir 17. mars 2023

Ríkisstjórnin hyggst bregðast við verðbólgu með aðhaldi í ríkisfjármálum. Fjármálaráðherra segir gætt verði áhrifum verðbólgu á viðkvæma hópa.

Íslenska ríkið var í dag sýknað af 650 milljóna króna skaðabótakröfu Frigusar í tengslum við söluna á félaginu Klakka.

Til stendur flytja inn gámabyggð fyrir allt fimmtán hundruð hælisleitendur. Félagsmálaráðherra segir þetta vera fullgilt húsnæði, sem þekkist meðal annars í skólakerfinu.

Kínversk fyrirtæki hafa útvegað rússneskum fyrirtækjum riffla og önnur hergögn síðustu mánuði, samkvæmt rannsókn fjölmiðilsins Politico. Forseti Kína fer í þriggja daga heimsókn til Rússlands í næstu viku.

Stjórnarandstöðuþingmenn í Frakklandi segja Macron forseta hafa komið á stjórnarkreppu í landinu og ætla leggja fram vantrauststillögu honum á hendur. Hækkun ellilífeyrisaldurs í landinu var áfram mótmælt í morgun.

Lektor við háskóla Íslands segir fyrirhuguð áform um færa háskólakennara úr einkaskrifstofum í opin vinnurými stærsta kjaramál háskólakennara frá upphafi.

Undirbúningur er hafinn innan Evrópusambandsins aukinni samhæfingu umferðarreglna, sem auka eiga umferðaröryggi og gera erfiðara komast undan viðurlögum fyrir umferðarlagabrot.

Það ræðst á morgun hvaða lið verður bikarmeistari í handbolta. Valskonur geta varið titilinn í kvennaflokki á meðan nýr meistari verður krýndur í karlaflokki.

Frumflutt

17. mars 2023

Aðgengilegt til

16. mars 2024
Fréttir kl.12:20

Fréttir kl.12:20

Útvarpsfréttir.