Fréttir kl.12:20

Hádegisfréttir 12. janúar 2023

Samherji hefur náð sátt við Skattinn vegna rannsóknar á skattalagabrotum og greitt um 230 milljónir króna. Sakamálarannsókn á Samherja vegna þessa hefur verið felld niður en rannsókn á meintum mútugreiðslum og peningaþvætti Samherja í Namibíu er enn í fullum gangi.

Karlalandslið Íslands hefur leik á heimsmeistaramótinu í handbolta í kvöld. Liðið mætir Portúgal í Kristianstad í Svíþjóð. Búist er við yfir þúsund íslenskum áhorfendum á leikinn.

Hagnaður fyrirtækja jókst um sextíu prósent frá 2018 þar til í fyrra. Þetta er niðurstaða mats BHM. Ekki hefur verið meiri hagnaður af rekstri fyrirtækja en í fyrra og hitteðfyrra frá aldamótum.

Félagsmálaráðherra segir það ekki ganga nógu hratt semja við sveitarfélög um móttöku flóttafólks. Nokkur sveitarfélög hafa mótmælt því Vinnumálastofnun hýsi fólkið þar. Bann biður þau taka jákvætt í húsnæðisleitina.

Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa valið forstjóra eins stærsta olíufyrirtækis í heimi til þess leiða loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Dúbaí síðar á árinu.

Tæplega tólf hundruð milljónum króna verður úthlutað í 25 samstarfsverkefni allra háskóla landsins. Stærsta verkefnið snýr fjölgun nemenda í heilbrigðisvísindum.

Um sextíu eru í stuðningshópi fyrir fyrrverandi safnaðarmeðlimi Votta Jehóva . Forsvarskona hópsins segir mikla þörf á faglegum úrræðum fyrir þolendur trúarofbeldis.

Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Mið-Austurlanda, segir engin merki um klerkastjórnin Í Íran ætli slaka á harðstjórn sinni, þvert á móti aukist harðneskjan.

Einn af áhrifamestu gítarleikurum rokksögunnar, Jeff Beck, er látinn, sjötíu og átta ára aldri.

Frumflutt

12. jan. 2023

Aðgengilegt til

12. jan. 2024
Fréttir kl.12:20

Fréttir kl.12:20

Útvarpsfréttir.