Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
Hádegisfréttir 7. mars 2021
Skjálfti sem mældist fimm varð á Reykjanesskaga við Fagradalsfjall rétt eftir tvö í nótt. Margir sterkir skjálftar fylgdu og fundust vel, ekki síst í Grindavík þar sem íbúum varð ekki…
Hádegisfréttir 6. mars 2021
Viðgerð, þegar rafmagnslaust varð Grindavík hátt í tíu tíma í gær, tók alltof langan tíma segir bæjarstjórinn. Rafmagnsleysið hafi verið mjög bagalegt ekki síst í ljósi jarðskjálftahrinunnar…
Hádegisfréttir 5. mars 2021
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun kröfu Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, um að ógilda úrskurð kærunefndar jafnréttismála vegna ráðningar ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytið.
Hádegisfréttir 4. mars 2021
Jarðhræringar halda áfram á Reykjanesskaga. Sterkasti skjálftinn í dag varð rétt fyrir klukkan níu, fjórir og hálfur að stærð. Gervihnattamyndir sem búist var við í dag koma líklega…
Hádegisfréttir 3. mars 2021
Sex skjáltar yfir þremur að stærð, hafa orðið frá miðnætti við Keili og Fagradalsfjall. Nú er rétt vika síðan jarðskjálfti upp á 5,7 skók allt sunnan- og vestanvert landið
Hádegisfréttir 2. mars 2021
Meira en tuttugu skjálftar, stærri en þrír, hafa mælst á Reykjanesskaga frá miðnætti. Sá stærsti varð klukkan þrjú í nótt, 4,6 að stærð. Vísindamenn mæla gasstreymi í dag. Fundur í…
Hádegisfréttir 1. mars 2021
Jörð skelfur enn á Reykjanesskaga og hafa nærri tuttugu skjálftar yfir þremur að stærð mælst þar síðan á miðnætti. Sá stærsti var 4,9 að stærð og varð klukkan hálf tvö í nótt. Við…
Hádegisfréttir 28. febrúar 2021
Ekki virðist draga úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga. Snarpur skjálfti, 4,3, mældist suðvestur af Keili um hálftólf í morgun. Hann var sá þriðji yfir fjórum frá miðnætti.
Hádegisfréttir 27. febrúar 2021
Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni á Reykjanesskaga. Hundruð skjálfta hafa orðið síðan í gærkvöld, þeir stærstu trufluðu svefn fólks á Suðvesturhorninu í nótt, sá stærsti var 5,2,…
Hádegisfréttir 26. febrúar 2021
Fimm jarðskjálftar fundust vel á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaga og víðar í hádeginu. Tveir þeirra voru stærri fjórir og stærri. Sá stærsti var 4,4 að stærð sex mínútur yfir tólf.
Hádegisfréttir 25. febrúar 2021
Mikil jarðskjálftavirkni er enn á Reykjanesskaga. Þó hafa aðeins fjórir skjálftar stærri en þrír orðið síðan í gærkvöld og sá síðasti um hálffjögurleytið í nótt.
Hádegisfréttir 24. febrúar
Öflug skjálftahrina hófst í morgun rétt eftir klukkan tíu á Reykjanesskaga. Upptökin eru annars vegar í Fagradalsfjalli skammt frá Grindavík og hins vegar í Núpshlíðarhálsi sem er…
Hádegisfréttir 23. febrúar 2021
Fjöldatakmarkanir verða rýmkaðar úr 20 í 50 með nýrri sóttvarnareglugerð, sem tekur gildi á morgun. Áhorfendur fá aftur að mæta á íþróttaviðburði og opnunartími veitingastaða verður…
Hádegisfréttir 22. febrúar 2021
Tillögur sóttvarnalæknis um tilslakanir nú snúa fremur að skólum og skipulögðum atburðum heldur en fermingarveislum. Hann segir að krár yrðu þeir staðir sem farið yrði varlegast í…
Hádegisfréttir 21. febrúar 2021
Formaður félags rannsóknarlækna segir flutning leghálskimana til heilsugæslunnar illa skipulagða og ekkert samráð hafi átt sér stað utan heilsugæslunnar. Meiri líkur séu á að eitthvað…
Hádegisfréttir 20. febrúar
Lögreglan handtók tvo til viðbótar í gær vegna rannsóknarinnar á morðinu í Rauðagerði. Tíu manns eru þvi í haldi vegna málsins.
Hádegisfréttir 19. febrúar 2021
Fyrsta innanlandssmitið í átta daga greindist í gær. Sá var í sóttkví. Fyrstu farþegarnir sem þurftu að framvísa vottorði um smitleysi komu frá Boston í morgun. Fjórðungur farþega…
Hádegisfréttir 18. febrúar 2021
Sjö eru í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á morði á ungum manni í Rauðagerði um síðustu helgi. Þrír menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöld, en einni konu…
17.02.2021
Hádegisfréttir 16. febrúar 2021
Þeir sem koma til landsins þurfa að framvísa nýlegu, neikvæðu Covid-prófi, samkvæmt drögum að nýrri reglugerð sem Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi…
Hádegisfréttir 15. febrúar 2021
Von er á rúmlega sjötíu þúsund skömmtum af bóluefni við COVID hingað til lands í lok mars. Sóttvarnalæknir vonar að hægt verði að bólusetja sem flesta í sumar.
Hádegisfréttir 14. Febrúar
Einn er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við andlát í Reykjavík í nótt.
Hádegisfréttir 13. Febrúar
Lyfjastofnun hefur fengið hátt í 250 tilkynningar um aukaverkanir eftir bólusetningar við Covid-19. Forstjóri stofnunarinnar segir viðbúið að aukaverkanir geri vart við sig hjá yngra…
Hádegisfréttir 12. febrúar 2021
Rúmlega tvö hundruð íslenskum konum voru í gær dæmdar bætur fyrir frönskum áfrýjunardómstóli vegna skaðlegra brjóstapúða. Lögmaður kvennanna segir aðra málsókn líklega, þar sem mun…
Hádegisfréttir 11. febrúar 2021
Ekkert kórónuveirusmit greindist innanlands í gær, annan daginn í röð. Til skoðunar er að herða aðgerðir á landamærunum til að koma í veg fyrir að smit berist inn í landið.
Hádegisfréttir 10. febrúar 2021
400 lögreglumenn og sjúkraflutningamenn verða bólusettir í nýrri bólusetningarmiðstöð í Laugardalshöll í dag. Heilbrigðisráðherra segir að Pfizer-viðræðurnar hafi verið óformlegar.
Hádegisfréttir 9. febrúar 2021
Sóttvarnalæknir, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og fulltrúi Landspítalans eiga í dag fund með bandaríska lyfjaframleiðandanum Pfizer um hugsanlega vísindarannsókn og bólusetningu…
Hádegisfréttir 8. febrúar 2021
Litlar líkur eru taldar á að John Snorri Sigurjónsson finnist á lífi á fjallinu K2. Þetta kemur fram í tilkynningu frá eiginkonu hans. Johns hefur verið saknað í þrjá sólarhringa.
Hádegisfréttir 7. febrúar 2021
Aðstaða til fjöldabólusetninga í Laugardalshöll er ekki til marks um að Pfizer samningurinn sé í höfn. Þetta segir Víðir Reynisson. Henni sé fyrst og fremst ætlað auka afkastagetu…
Hádegisfréttir 6. febrúar 2021
Leit pakistanska hersins að John Snorra Sigurjónssyni og samferðamönnum hans á K2 bar ekki árangur í morgun. Til greina kemur að beita herflugvélum við leitina. Kvikmyndagerðamaður…
Hádegisfréttir 05. febrúar 2021
Ríkisstjórnin ræddi í morgun tillögur sóttvarnalæknis um tilslakanir á sóttvarnareglum.
Hádegisfréttir 04. febrúar 2021
Bóluefni AstraZeneca verður ekki gefið þeim sem eru 65 ára eða eldri hér á landi. Sóttvarnalæknir skorar á Alþingi að samþykkja tillögur um breytt sóttvarnalög hið fyrsta og er bjartsýnn…
Hádegisfréttir 3. febrúar 2021
Danskur karlmaður á sextugsaldri hefur játað að hafa orðið íslenskri konu að bana á heimili hennar í Árósum. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.
Hádegisfréttir 02. febrúar 2021
Hringveginum hefur verið lokað fyrir allri umferð, frá Námaskarði að afleggjaranum til Vopnafjarðar, vegna hættu á öðru krapaflóði í Jökulsá á Fjöllum.
Hádegisfréttir 01. febrúar 2021
Valdarán hersins í Mjanmar í nótt er fordæmt víða um heim. Þess er krafist að Aung San Su Kyi og öðrum valdamönnum verði tafarlaust sleppt úr haldi.
Hádegisfréttir 31. janúar
Meira en þúsund hafa verið handtekin í Rússlandi í dag við mótmæli til stuðnings Alexei Navalny. Í Moskvu er gríðarlegur viðbúnaður lögreglu og er fólki sópað upp í brynvarðar rútur.
Hádegisfréttir 30. janúar
Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um aðild að skotárásinni á bíl borgarstjóra síðasta laugardag.
Hádegisfréttir 29. janúar
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn segir ummæli varaborgarfulltrúa flokksins um skotárásina á bíl borgarstjóra vera ólíðandi. Varaborgarfulltrúinn kveðst hafa gert mistök…
Hádegisfréttir 28. janúar
Skotið var á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra Reykjavíkur í seinustu viku. Lögregla vaktaði heimili hans um helgina vegna málsins.
Hádegisfréttir 27. janúar
Formaður hæfnisnefndar, sem lagði mat á umsækjendur um embætti ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu, sagði við aðalmeðferð í héraðsdómi í morgun að kynferði hefði ekki haft áhrif…
Hádegisfréttir 26. janúar 2021
Heilbrigðisráðherra segir að um mitt ár ætti að vera búið að bólusetja þorra þjóðarinnar og þá verði hægt að skoða slakanir á takmörkunum. 67 þúsund bóluefnaskammtar eigi að berast…
Hádegisfréttir 25. janúar 2021
Óvissustig er enn í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi. Ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofunni segir greinilegt að snjóalög séu óstöðug. Brýnt sé að hafa varann á.
Hádegisfréttir 24. janúar 2021
Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt, en búist er við að rýmingu vegna snjóflóðahættu verði aflétt á Flateyri síðar í dag. Talið er að minnsta kosti þrjú hross hafi…
Hádegisfréttir 23. janúar
Hættustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Ísafirði. Íbúðahús eru talin örugg en atvinnuhúsnæði verða rýmd. Björgunarsveitir aðstoðuðu á þriðja tug vegfarenda þegar tvö…
Hádegisfréttir 22. janúar 2021
Óvissustig er á öllu Norðurlandi og snjóflóðahætta á Vestfjörðum er að aukast. Enn er hættustig vegna snjóflóðahættu á Siglufirði og rýmingu þar verður ekki aflétt að svo stöddu.
Hádegisfréttir 21. janúar 2021
Mikið tjón varð í nokkrum byggingum Háskóla Íslands í nótt þegar þúsundir tonna af vatni flæddu um svæðið. Vatnið kom úr gamalli kaldavatnslögn sem Veitur hafa unnið að viðgerðum á…
Hádegisfréttir 20. janúar 2021
Joe Biden verður svarinn í embætti Bandaríkjaforseta eftir hádegi í dag. Gríðarmikill viðbúnaður er í Washington.
Hádegisfréttir 19. janúar 2021
Almannavarnir ætla að breyta skilaboðum sínum um að allir sem koma til landsins eigi að koma sér tafarlaust í sóttkví. Eigi þeir langt ferðalag fyrir höndum, utan suðvesturhornsins,…
Hádegisfréttir 18. janúar 2021
Varðstjóri hjá lögreglunni á Ísafirði segir að aðstæður viðbragðsaðila við banaslys sem varð í Skötufirði á laugardag gefi til kynna hve brýnt sé að bólusetja þá. Tuttugu manns fóru…
Hádegisfréttir 17. janúar 2021
Konan sem var í bílnum sem hafnaði í sjónum í Skötufirði í gærmorun lést á gjörgæsludeild Landspítala seint í gærkvöld. Eiginmaður hennar og ungt barn voru einnig í bílnum og dvelja…
Hádegisfréttir 16. janúar 2021
Alvarlegt umferðarslys varð í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á ellefta tímanum í morgun þegar bíll með þremur endaði í sjónum. Samhæfingamiðstöð almannavarna var virkjuð og þyrlur Landhelgisgæslunnar…
Hádegisfréttir 15. janúar 2021
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bregðast við útbreiðslu faraldursins í Evrópu með því að skylda alla sem koma til landsins í tvöfalda skimun.
Hádegisfréttir 14. janúar 2021
Lokað er fyrir innlagnir á blóð- og smitsjúkdómadeild Landspítalans eftir að sjúklingur þar greindist smitaður af COVID-19. Sjúkrahúsið á Ísafirði hefur verið fært á hættustig vegna…
Hádegisfréttir 13. janúar 2021
Enginn, hvorki sjúklingur né starfsmaður, hefur greinst smitaður af kórónuveirunni í kjölfar smits sem greindist á hjartadeild Landspítala í gær. Staðan á deildinni er stöðug.
Hádegisfréttir 12. janúar 2021
Fyrsta sending bóluefnis frá Moderna er komin til landsins. 1200 skammtar verða gefnir framlínustarfsfólki á morgun ef hitastigið var rétt í flutningnum til landsins.
Hádegisfréttir 11. janúar 2021
Von er á um 1.200 skömmum af bóluefni frá Moderna á morgun. Það verður notað til að klára að bólusetja framlínustarfsmenn, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Bólusetningin fer fram á miðvikudag.
Hádegisfréttir 10. janúar 2021
Mikið annríki var hjá Björgunarsveitum á Austurlandi í gær vegna vonskuveðurs sem gekk yfir landshlutann. Stór fóðurprammi sökk á Reyðarfirði í óveðri í nótt og litlu munaði að annar…
Hádegisfréttir 9. janúar 2021
Vonskuveður er á öllu austanverðu landinu, norðaustanstormur eða rok. Björgunarsveitir hafa farið í fjölda útkalla í Neskaupstað og rafmagnslaust varð á Kirkjubæjarklaustri í morgun.
Hádegisfréttir 8. Janúar 2021
Fimmtán greindust með kórónuveiruna á landamærunum í gær, og tveir innanlands. Sóttvarnalæknir segir greinilegt að fólk hafi staðið sig vel um hátíðarnar. Tilefni sé til að slaka á…
Hádegisfréttir 07. Janúar 2021
Fjögur létust þegar hópur fólks réðst inn í þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum í gær. Donald Trump hefur sagt að lyklaskipti í Hvíta húsinu fari friðsamlega fram en bandaríkjaþing…
Hádegisfréttir 06. Janúar 2021
Fjölmiðlar vestanhafs segja Demókratann Raphael Warnock hafa tryggt sér sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings í kosningunum í Georgíu í gær og segja auknar líkur á að Repúblikanar missi…
Hádegisfréttir 5. janúar 2021
Fimm tilkynningar hafa borist um mögulegar alvarlegar aukaverkanir í kjölfar bólusetningar við COVID-19. Forstjóri Lyfjastofnunar telur að hverfandi líkur séu á orsakasambandi milli…
Hádegisfréttir 4. janúar 2021
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að hugsanlega fái Íslendingar bóluefni, fyrr en gert hefur verið ráð fyrir. Hann segir þó ekkert nýtt komið fram í viðræðum við Pfizer um…
Hádegisfréttir 3. janúar 2021
Verktakar á Seyðisfirði telja að það taki viku að greiða leið í gegnum skriðuna sem féll á bæinn. Það hefur hlýnað í veðri og því ekki talið öruggt að vinna á svæðinu í dag
Hádegisfréttir 2. janúar 2021
Norska lögreglan segir enn möguleika á að finna fólk á lífi í rústunum í Ask. Leit hófst snemma í morgun en hefur ekki borið árangur enn.
Hádegisfréttir 1. janúar 2021
Níu komu á slysadeild Landspítalans á nýársnótt vegna flugeldaslysa. Um helmingur var börn. Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sérlega mikil mengun var af völdum…
Hádegisfréttir 31. desember 2020
Tíu er enn leitað, þar á meðal tveggja barna, í bænum Ask í Noregi, þar sem um fjörutíu byggingar hafa horfið í jarðskriði. Jarðfræðingur segir að vitað hafi verið af hættunni í Ask.
30.12.2020
Að minnsta kosti tíu slösuðust þegar aurskriður féllu á bæinn Ask í Noregi í nótt. Ekki er vitað um afdrif á þriðja tugs bæjarbúa sem búa í húsum sem grófust undir skriðuna. Hafdís…
Hádegisfréttir 29. desember 2020
Bólusetning við COVID-19 hófst á Íslandi í morgun. Heilbrigðisstarfsfólk og íbúi á hjúkrunarheimili fagna áfanganum og hvetja aðra til að þiggja bólusetningu þegar hún býðst.
Hádegisfréttir 28. desember 2020
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að í dag hefjist nýr kafli í baráttunni við COVID-19 með tilkomu fyrsta skammtsins af bóluefni hingað til lands. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra,…
Hádegisfréttir 27. desember 2020
Bátar losnuðu frá bryggju og lausamunir tókust á loft í miklu hvassviðri sem gekk yfir Vestmannaeyjar í morgun. Björgunarsveitir þar og á Suðurnesjum sinntu hátt í tuttugu útköllum.
Hádegisfréttir 26. desember 2020
Dreifing á bóluefni lyfjafyrirtækisins Pfizer hófst innan Evrópusambandsins í dag. Íslendingar fá tíu þúsund skammta á mánudag.
Hádegisfréttir 25. Desember
Þingflokkur Pírata íhugar að leggja fram vantrauststillögu á hendur Bjarna Benediktssyni, eftir að hann varð uppvís að sóttvarnarbroti á Þorláksmessukvöld.
Hádegisfréttir 24. Desember
Fjármála- og efnahagsráðherra var meðal gesta í tæplega fimmtíu manna samkomu sem lögregla leysti upp í gærkvöld vegna brota á reglum um samkomutakmarkanir og lokun samkomustaða.
23.12.2020
Hádegisfréttir 22. desember 2020
Forsætisráðherra segist afar sleginn yfir því sem við blasi á Seyðisfirði og að stjórnvöld muni standa við loforð um uppbyggingu bæjarins. Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar áttu…
Hádegisfréttir 21. desember 2020
Fyrstu skammtarnir af bóluefni frá Pfizer eru væntanlegir til landsins 28. desember. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefur fullvissað Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra…
Hádegisfréttir 20. desember 2020
Til skoðunar er hvort hægt er að aflétta rýmingu á hluta Seyðisfjarðar í dag og hleypa íbúum þeirra svæða aftur heim. Ekki er útilokað að frekari skriður geti fallið.
Hádegisfréttir 19. desember
Minnst ellefu hús hafa orðið fyrir skemmdum af völdum aurskriða á Seyðisfirði. Neyðarstig er enn í gildi. Enginn fær að fara til bæjarins nema björgunarsveitarfólk, lögregla og sérfræðingar.
Hádegisfréttir 18. desember 2020
Tvær aurskriður féllu á Seyðisfjörð í nótt. Önnur hreif með sér mannlaust hús og bar það fimmtíu metra leið. Rýmingarsvæðið hefur verið stækkað og fleiri hafa þurft að yfirgefa heimili…
Hádegisfréttir 17. desember 2020
Hjarðónæmi í samfélaginu næst sennilega ekki fyrr í fyrsta lagi um mitt næsta ár og er því viðbúið að takmarkanir verði í gildi fram eftir næsta ári. Ef svo fer sem horfir hefst bólusetning…
Hádegisfréttir 16. desember 2020
Um hundrað Seyðfirðingar sváfu á gistiheimilum í bænum og hjá skyldfólki eftir að efstu götur í bænum að sunnanverðu voru rýmdar vegna skriðufalla. Grjót og leðja úr stærstu aurskriðunni…
15.12.2020
Helmingi færri skammtar af bóluefni Pfizer koma til landsins um áramót en samningar gera ráð fyrir.
14.12.2020
Veikindi og tekjuskerðing vegna kórónuveirufaraldursins hefur haft neikvæð áhrif á geðheilsu fólks, og einnig veikindi nákominna, samkvæmt frumniðurstöðum rannsóknar á líðan fólks…
Hádegisfréttir 13. desember 2020
Sjö greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær. Allir sem greindust voru í sóttkví.
Hádegisfréttir 12. desember 2020
Sóttvarnarlæknir hefur áhyggjur af því að smit berist frá útlöndum með fólki sem kemur heim yfir hátíðarnar. Talsvert fleiri sýni voru tekin á landamærunum í gær en verið hefur. Eftirlit…
Hádegisfréttir 11. desember 2020
Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þar af voru ellefu í sóttkví. Þá greindust tíu á landamærunum. Átta smit tengjast klasasmiti sem kom upp í búsetuúrræði á vegum Útlendingastofnunar.
Hádegisfréttir 10. desember 2020
Gera má ráð fyrir að langan tíma taki fyrir bóluefni við kórónuveirunni að berast til landsins, að sögn sóttvarnalæknis.
Hádegisfréttir 9. desember 2020
Eigendur líkamsræktarstöðva, veitingahúsa og kráa íhuga að höfða mál á hendur stjórnvöldum vegna sóttvarnaaðgerða. Þeir segja að atvinnugreinum sé mismunað.
Hádegisfréttir 8. desember 2020
Fjöldatakmörk verða miðuð við tíu manns til 12. janúar, með ýmsum undanþágum. Sundlaugar verða opnaðar aftur, fyrir helming leyfilegs hámarksfjölda. Heilbrigðisráðherra greindi frá…
Hádegisfréttir 7. desember 2020
Lítið má út af bregða til að þróun kórónuveirufaraldursins snúist til verri vegar. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi Almannavarna í morgun. Hann sagði…