Hljóðritun frá tónleikum sem fram fóru á Alþjóðlegu kammertónlistarhátíðinni í Stavangri í ágúst.
Á efnisskrá eru kammerverk eftir Gustav Mahler, Alfred Schnittke, Joseph Haydn og Franz Schubert.
Flytjendur: Fiðluleikararnir Boris Brovtsyn og Henning Kraggerud, víóluleikararnir Razvan Popovici og Eivind Holtsmark Ringstad, sellóleikararnir Pieter Wispelwey og Andreas Brantelid, píanóleikararnir Diana Ketler og Christian Ihle Hadland, kontrabassaleikarinn Igor Eliseev og Mosaïques strengjakvartettinn.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.
Frumflutt
17. jan. 2023
Aðgengilegt til
4. júlí 2024
Endurómur úr Evrópu
Tónleikahljóðritanir frá Sambandi evrópskra útvarpsstöðva.