Bíll, við þurfum að ræða saman

Bíllinn þarf pláss

Hvenær erum við sjálfstæð og hvenær ósjálfstæð? Arnar veltir fyrir sér skipulagi, óskipulagi, stjórn, stjórnleysi og notagildi óreiðunnar.

Fjallað er um fjölskyldubíllinn og einkabíllinn, félagslega hugmyndafræði bílsins, ofur-rökhyggju, gatnalagningu rómverja, og sjálfan taktinn í bæjarlífinu.

Þáttagerð: Arnar Geir Gústafsson og Snorri Rafn Hallsson.

Viðmælendur: Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Hildigunnur Sverrisdóttir, Herdís, Alexia og Katrín.

Frumflutt

3. júní 2023

Aðgengilegt til

3. júní 2024
Bíll, við þurfum að ræða saman

Bíll, við þurfum að ræða saman

Í þessari þáttaröð hættir Arnar með bílnum, eða allavega endurskoðar samband sitt við hann.

Þáttasería um ástarsambönd og sambandsslit, borgarskipulag og óreiðu, rúntinn, bílaþvott, tæknilega skynsemishyggju, sjálfstæði og ósjálfstæði.

Við getum ekki haldið áfram treysta á bílinn sem aðal ferðamáta okkar. En af hverju er það svona erfitt? Ég elska bílinn. Ég veit ekki hvernig ég gæti lifað hér án hans, ég elska keyra, ég tengingu við sjálfan mig og aðra í honum. Hann hreyfanleg rót í mínu lífi.

En bökkum aðeins. Hvernig varð þetta svona? Hvernig getur málmílát með vél og gúmmídekkjum orðið órjúfanlegur partur af sjálfi okkar og þjóð? Hvað gerist þegar draumkenndu hveitibrauðsdagar okkar með bílnum eru taldir? Þurfum við kveðja bílinn alfarið eða getum við fundið jafnvægi í sambandi okkar sem þjónar báðum aðilum?

Þáttagerð: Arnar Geir Gústafsson og Snorri Rafn Hallsson.

Þættir

,