07:03
Morgunútvarpið
Menntun barna á Gaza,konudagurinn,11 hvolpa got og er Jakob Birgis enn nikótínlaus?

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Hundruð þúsunda barna á Gaza hafa verið svipt réttindum sínum til náms. Árásir Ísraelsher hafa haldið áfram þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi og nú eru námsgögn loksins farin að berast inn á svæðið. UNICEF fer af stað með verkefnið aftur til náms á Gaza á fimmtudag og miðar það að því að koma 336 þúsund börnum aftur í skóla á þessu ári og veita þeim sálræna aðstoð. Sigyn Blöndal, kynningarstjóri UNICEF, fór á Vesturbakkann fyrir áramót og sá þar með eigin augum hverjar áskoranirnar eru. Húnkom til okkar í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessu metnaðarfulla verkefni.

Vísir greindi frá því í vikunni að íslenska tíkin Þekla gaut ellefu hvolpum, sjö tíkum og fjórum rökkum. Eigandinn Guðný Halla Gunnlaugsdóttir segist aldrei hafa vitað af íslenskum fjárhundi sem hefur átt svona marga lifandi hvolpa í goti. Við heyrðum í henni og spurðum hvernig gengur.

Mánuður er liðinn frá því að við tókum eftirminnilegt viðtal við Jakob Birgisson um níkotínfíknina, sem hann var að reyna að vinna bug á. Þá var vika síðan hann lagði lummurnar á hilluna og nú var komið að því að kanna hvernig gengur. Er Jakob laus úr viðjum fíknarinnar eða eru dollurnar byrjaðar að banka upp á? Jakob var á línunni.

Konudagurinn er framundan og þá klórar fólk sér í kollinum yfir hvað á að gera fyrir konur þessa lands. Er gamli, góði blómvöndurinn nóg eða þarf að ganga lengra? Marta María í Smartlandinu er með puttann rækilega á púlsinum og hún kom til okkar og lagði línurnar. Ættu kannski allir dagar að vera konudagar?

Eftir svona viku dugir ekkert minna en óperusöngvarar til að fara yfir fréttir vikunnar. Þau Kristín Sveinsdóttir, sem syngur hlutverk Carmenar í samnefndri sýningu í Tjarnarbíói og Eggert Reginn Kjartansson sem syngur hlutverki Don José komu til okkar og hófu upp raust sína.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,