Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, flytur.
Útvarpsfréttir.
Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Bjartmar Guðlaugsson fór til Danmerkur ásamt fjölskyldu og bjó þar í 5 ár. Hann var í myndlistarnámi fyrstu 3 árin og síðan starfaði hann við listina og tónlistina víða á Norðurlöndum. Hann segir frá tíma sínum hjá Dönum í þættinum í dag. Umsjón: Magnús R. Einarsson.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Jökull Karlsson
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Flutt eru austurlensk sönglög og tónverk vestrænna tónsmiða undir austurlenskum áhrifum. Meðal annars verða fluttir söngvar af geislaplötunni „El Nour“ þar sem egypska sópransöngkonan Fatma Said syngur lög eftir egypsk, líbönsk og frönsk tónskáld, en þessi geislaplata hefur vakið mikla athygli. Einnig verður fluttur „Egypskur mars“ eftir Johann Strauss, hljómsveitarfantasían “Afríka“ eftir Camille Saint-Saëns og píanóverkið „Canope“ eftir Claude Debussy. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.
Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf. Gestur þáttarins er er Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Gunnar Helgi hefur sent frá sér rit um Elítur og valdakerfi á Íslandi. Í ritinu heldur Gunnar Helgi því fram að þróun hafi orðið á Íslandi frá valdakerfi þar sem embættismenn og önnur elíta með sterk ættartengsl réði á nítjándu öld til flokksræðis á þeirri tuttugustu, þar sem stjórnmálaelítan fór með völdin, en á síðustu áratugum hafi orðið til eins konar margræði þar sem ólíkir elítuhópar í samfélaginu fari með völdin. Rætt er við Gunnar Helga um þessa þróun, kosti og galla ólíkra valdakerfa, áhrif og styrk ólíkra hópa og hlutverk lýðræðisins í valdakerfi samtímans.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Rætt við gesti þáttarins um bók vikunnar.
Umsjónarmenn eru Auður Aðalsteinsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Jóhannes Ólafsson og Halla Harðardóttir.
Fjallað um bók vikunnar sem er Aprílsólarkuldi eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Viðmælendur eru Hólmfríður María Bjarnadóttir bókmenntafræðingur og ritstjóri og Gunnþórunn Guðmundsdóttir prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir.
Guðsþjónusta.
Séra Leifur Ragnar Jónsson, sóknarprestur, predikar og þjónar fyrir altari.
Organisti og stjórnandi: Hrönn Helgadóttir.
Kór Guðríðarkirkju syngur.
Fyrir predikun:
Forspil: Morgunstemning eftir Edvard Grieg.
Sálmur 331: Sannleikans andi, lát sannleikans ljós þitt oss skína. Lag: Stralsund. Texti: Valdimar Briem.
Sálmr 878: Hallelúja, hallelúja, hallelúja. Þjóðlag frá Hondúras. Litúrgískur texti.
Sálmur 162: Minn Herra Jesús, hvert fer þú?. Íslenskt lag. Texti: Valdimar Briem.
Eftir predikun:
Sálmur 852: Í dagsins dýrðarmynd - Bæn um frið. Lag: Gillford Mitchell. Texti: Eygló Eyjólfsdóttir.
Sálmur 834: Leitið hans ríkis. Lag: Karen Lafferty. Texti: Jónas Gíslason.
Eftirspil: Toccata eftir Eugene Gigout
.
Hádegisútvarp í umsjón þular.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Blanda er þemað í þessum þætti. Það má blanda ýmsu saman og blöndur er víða að finna í lífi hvers manns. Við fáum áfenga blöndu af humlum og geri á Ísafirði, blöndum krem og smyrsl í Hafnarfirði og svo er það sjálf Blanda sem rennur út í hafið. Allt þetta skoðum við í þessum síðasta þætti vertíðarinnar. Inslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.
Umsjón: Dagur Gunnarsson
Við kynnumst einum efnilegasta listdansskautara landsins Ísold Fönn Vilhjálmsdóttur frá Möðrudal á Fjöllum. Við heyrum af frækilegum skautaferli Ísoldar Fannar og af bataferli hennar en fyrir hálfu ári gegst hún undir umfangsmikla aðgerð vegna sjaldgæfs sjúkdóms sem hafði plagað hana um margra ára skeið.
Efni í þáttinn vann Óðinn Svan Óðinsson.
Umsjón: Halla Ólafsdóttir
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.
Útvarpsfréttir.
SOS Sinfónía Jóns Hlöðvers Áskelssonar í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Hljóðritun frá tónleikum í Hofi, 29. maí 2022.
Einleikari á morstæki: Arngrímur Jóhannsson, loftskeytamaður.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.
Haustið 2017 átti tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson leið um Norðurslóðasetrið og hitti þar fyrir forstöðumann og eiganda safnsins, Arngrím Jóhannsson. Arngrímur, sem starfað hefur í áratugi sem flugmaður og loftskeytamaður, „morsaði" úr gömlu morstæki úr síðutogaranum Harðbak frá 1959 skilaboðin „ljósið skín í myrkrinu" og S.O.S.. Tónfall morsskilaboðanna vöktu með tónskáldinu hugmyndir og hugrenningatengsl. Hljóðskilaboð sem oft hafa skilið að ljós og myrkur, líf og dauða og tengjast bæði sorg og gleði. Þessi stund hafði slík áhrif á Jón Hlöðver að úr varð fimm þátta sinfónía þar sem þessi einföldu en merkingarþrungnu taktmynstur morsins skipa stóran sess.
Hljóðritun frá söngskemmtun Íslensku óperunnar í Norðurljósum, Hörpu 25. mars s.l. þar sem sópransöngkonan Karin Torbjörnsdóttir og píanóleikarinn Elena Postumi fluttu söngljóð eftir Claude Debussy, Francis Poulenc, Daníel Bjarnason, Ölmu Mahler, Arthur Honegger og Gunnar de Frumerie.
Umsjón: Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Rætt er við Hugrúnu Hólmgeirsdóttur og Halldóru Björt Ewen, fagstjóra í íslensku og íslenskukennara í Menntaskólanum við Hamrahlíð, um íslenskunám og -kennslu og viðhorf framhaldsskólanemenda til móðurmálsins.
Kvöldfréttir útvarps
Óformlegar viðræður hafa staðið í dag milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks i Reykjavík. Samanlagt fengu flokkarnir tíu borgarfulltrúa og vantar tvo til viðbótar til að ná saman meirhluta í borgarstjórn.
Kjörsókn dróst saman í öllum stærstu sveitarfélögum landsins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, ef frá er talinn Hafnarfjörður
yfir 250 skjálftar mælst á Reykjanesskaga frá því skömmu fyrir hádegi. Tveir jarðskjálftar yfir fjórir að stærð hafa mælst eftir hádegi í dag, annar þeirra á sjötta tímanum í kvöld.
Tunglið verður almyrkvað í nótt á suðvestur himni, um klukkan hálf fjögur. Ritstjóri stjörnufræðivefsins segir fallegt sjónarspil í vændum.
Sagt er frá einstaka fólki sem jarðsett er Hólavallagarði, gamla kirkugarðinum við Suðurgötu. Í hverjum þætti er staldrað við tvö leiði og rakin ævi þeirra sem þar hvíla.
Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
Í þessum þætti er staldrað við leiði Hannesar Hafstein (1861-1922) og systur hans Þórunnar Jónassen Hafstein (1850-1922).
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Fjallað um ævi kventónskáldanna Clöru Schumann og Ölmu Mahler.
Lesari: Hrafnhildur Hagalín
Umsjón: Einar Heimisson
(Áður á dagskrá 10.01.1995)
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þar sem er stríð, þar er kynferðislegu ofbeldi sömuleiðis beitt. Það virðist því miður vera einhverskonar lögmál, meira að segja enn þann dag í dag þrátt fyrir að aðgerðir gegn kynferðisofbeldi séu meira í umræðunni. Hluti af hjálparstarfi vegna stríðsins í Úkraínu miðar eingöngu að því að hjálpa konum á flótta undan mögulegu mansali, vændi eða öðru kynferðisofbeldi, og alveg ljóst að ekki er vanþörf á. Leit af úkraínskum konum í kynferðislegum tilgangi á netinu jókst um 200-600% strax eftir innrás Rússa í Úkraínu. Mjög víða, meira að segja hér á landi, hafa einhleypir karlmenn boðist til að hýsa ungar og huggulegar konur á flótta undan stríðsátökum í heimalandinu.
Birta ræddi við Valiant Richie, sérfræðing hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, sem fer fyrir þeirri deild stofnunarinnar sem berst gegn mansali og kynferðisofbeldi í stríði.
Læknirinn og fræðimaðurinn Ahmadreza Djalali, sem hefur verið í haldi í Íran frá árinu 2016, getur á hverri stundu búist við því að vera tekinn af lífi fyrir sakir sem mannréttindasamtök telja að eigi ekki við rök að styðjast. Djalali, sem er með íranskt og sænskt ríkisfang, er einn af fjölmörgum í haldi íranskra stjórnvalda sem eru með tvöfalt ríkisfang, annað þeirra íranskt. Þessir fangar virðast flestir nýttir til að beita pólitískum þrýstingi á önnur lönd. Hallgrímur Indriðason fjallar um málið.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
Sveinn Sæmundsson ræðir við fólk víðsvegar af landinu. Þáttaröðin var á dagskrá útvarpsins 1969 til 1972.
Sveinn Sæmundsson talar við Guðna Thorlacius skipstjóra, sem var annar stýrimaður á Sæbjörgu þegar breskur togari var staðinn að ólöglegum veiðum 1943.
Áður á dagskrá 23. febrúar 1969.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko lýsir því hvernig ferill hans sem námuverkamaður í Donbass-héraðinu upp úr 1920 endaði og hvernig samyrkjuvæðingunni í heimasveit hans í Úkraínu hafði reitt af. Þetta er mögnuð frásögn sem vakti svo mikla heift kommúnista þegar ævisaga Kravénkos kom út 1947 að það kom til réttarhalda í Frakklandi út af bókinni. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Jökull Karlsson
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Það er nánast ómögulegt að telja hversu oft maður hefur lent í þvi í gegnum tíðina að nefna við einhvern að maður sé kannski með smá kvef og fá svarið ?Það er nú einhver flensa að ganga?. Á hverju ári fáum við boð í inflúensusprautu, við heyrum um fuglaflensu sem er að ganga yfir ákkúrat núna til dæmis og svo erum við auðvitað að koma út úr löngu covid flensu ferli. En hvað eru flensur? Hver ber eiginlega ábyrgð á þessu öllu saman? Ég fékk til mín Vilhjálm Svansson Sem veit líklegt hvað mest um flensur á Íslandi.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Útvarpsfréttir.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Meðal annarra tónlistarflytjenda: Midlake, KK og fleiri grallaraspóar.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Um þessar mundir eru 40 ár eru liðin í ár frá útgáfu fyrstu smáskífu poppdrottningarinnar Madonnu. Af því tilefni fer Birgir Örn Steinarsson yfir tónlistar- og kvikmyndaferil hennar, réttindarbaráttu, einkalíf, sigra og sorgir. Hver þáttur hefur sitt eigið þema sem einkennir listasögu, höfundaverk eða persónuleika hennar.
Í öðrum þætti verður áhersla á réttindarbaráttu Madonnu skoðuð. Sérstaklega hvernig hún hefur sífellt storkað hugmyndum almennings um kynlíf og trúmál. Hún var brautryðjandi í baráttunni um kvenfrelsi á níunda- og tíunda áratugnum þar sem hún hikaði ekki við að nota list sína til þess að rugga bátnum. Nú síðast á Eurovision hátíðinni í Ísrael árið 2019.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ýmsir.
Virpi Jokinen var gestur Huldu Geirsdóttur í Sunnudagssögum að þessu sinni. Virpi er menntaður skipuleggjandi og hjálpar fólki að tækla verkefni sem oft virðast óyfirstíganleg. Hún ákvað þegar hún missti föður sinn ung að láta sjálfsvíg hans ekki marka sig, heldur fara í gegnum lífið með jákvæðni og lausnir að leiðarljósi.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Gestur Rokklands í dag er Ólafur Arnalds sem er orðinn stórt nafn í hinum alþjóðlega tónlistarheimi. Hann hefur unnið til fjölda veðlauna víða um heim og núna í ár var hann tilnefndur til Grammy verðlauna fyrir tvö lög af nýjustu plötunni seinni, Some kind of peace, og hann er að fara núna loksins að fylgja henni eftir með tónleikaferðalagi um allan heiminn.
Ólafur hefur tónleikaferðalag sitt um heiminn með tónleikum í Háskólabíói, 23. maí næstkomandi.
Það eru þrjú ár síðan Ólafur kom síðast fram á tónleikum á Íslandi en tónleikarnir í Háskólabíó marka upphafið af langri tónleikaröð og eru þeir fyrstu af um 50 í mörgum af helstu tónleikahöllum heims, í Norður Ameríku og Evrópu, s.s. Walt Disney Concert Hall í Los Angeles, Hammersmith Apollo í London og Tempodrom í Berlín.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Harður jarðskjálfti reið yfir laust fyrir klukkan fimm síðdegis og var 4,7 að stærð. Upptökin voru tæpan kílómetra norðaustur af Þrengslum og fannst vel í nærsveitum og á höfuðborgarsvæðinu.
Kjörsókn var ögn lakari í Reykjavík klukkan fimm í dag en á sama tíma í sveitarstjórnarkosningunum 2018. Yfir 37 þúsund manns hafa kosið í borginni.
forsætisráðherra Finnlands segir viðbúið að Finnland og Svíþjóð sæki saman um aðild að NATO í næstu viku. aðild Finnlands að Nato komi til með að efla öryggi í Evrópu.
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Allir í góðum gír á kvöldvakt kvöldsins, nýtt efni frá Hjálmum & GDRN, Sigrid, Taylor Swift, Sharon Van Etten ásamt smá Eurovision yfirferð.
Með hækkandi sól - Sigga, Beta & Elín
Hafðu engar áhyggjur - KK
Bona fide - Krummi & Soffía Björg
Upp á rönd - Hjálmar & GDRN
Listen To The Music - Doobie Brothers
Jojo - Winona Oak
Intime - Lulu Gainsbourg
Bang My Line - Cosmo's Midnight
Open Your Heart - GDRN
De Diepte - S10
Dig - Incubus
Gold Lion - Yeah Yeah Yeahs
Hang Me Up To Dry - Cold War Kids
Steady As She Goes - The Raconteurs
Wolf Like Me - TV On The Radio
Western Wind - Carly Rae Jepsen
No One Dies From Love - Tove Lo
All Good Things (Come To An End) - Nelly Furtado
This Love (Taylor's Version) - Taylor Swift
A Driver Saved My Night - Sigrid
The Best Part Of Life - Saint John & Imanbek
On Repeat - David Guetta & Robin Schulz
Into The Groove (You Can Dance Remix) - Madonna
Till The End - Jonas Blue, Sam Feldt, Sam DeRosa & Endless Summer
Fullen - Alvan & Ahez
Skylights - Tilbury
Hang A Cross On Me - Pond
Mistakes - Sharon Van Etten
New Romance - Beach House
DNA - Sea Girls
Down - Hot Chip
Pizza Boy - Everything Everything
Circumference - Working Men's Club
Crosswalk - Totally Enormous Extinct Dinosaurs
Wildife - Sbtrkt
Búkalú - Stuðmenn
Everything Counts - Depeche Mode
Once In A Lifetime - Talking Heads
Bizzare Love Triangle - New Order
Love Will Tear Us Apart - Joy Division
Message In A Bottle - The Police
Rock & Roll - Velvet Underground
Útvarpsfréttir.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 7. - 14. maí.