12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 29. Apríl 2021
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Vel gengur að bólusetja á landinu og er alls staðar byrjað að gefa fólki sem er fætt árið 1962 bóluefni. Í Reykjavík á að hefjast handa við að bólusetja '63-árganginn.

Sóttvarnalæknir telur ekki þörf á hertum aðgerðum að sinni, þótt þrjú smit hafi greinst utan sóttkvíar í gær sem ekki má rekja til kunnra hópsýkinga. Hann segir ánægjulegt að fólk virðist ekki skrópa frekar í bólusetningu með AstraZeneca en öðrum efnum.

Joe Biden Bandaríkjaforseti segist ekki vilja auka spennuna í samskiptum við Kína og Rússland en misgjörðir þeirra hafi afleiðingar. Hann hélt fyrstu þingræðu sína eftir forsetakjörið í gærkvöld.

Ákveðið hefur verið að leysa upp stjórnmálasamtök Alexei Navalny í Rússlandi. Saksóknarar hafa krafist þess að samtökin yrðu skilgreint sem öfgasamtök.

Skortur á rauntímagögnum um fasteignamarkaðinn veldur því að menn eltast við flökkusögur um stöðu á markaði þegar kemur að fjárfestingum, segir forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Linda Rós Hannesdóttir og Snorri Einarsson urðu í gær Íslandsmeistarar í sprettgöngu á Skíðamóti Íslands og íslenska karlalandsliðið í handbolta getur í dag tryggt sér sæti á EM með sigri á Litháen.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,