22:05
Konsert
KK & Föruneytið 2019
Konsert

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.

Í Konsert vikunnar ætlum við að slást í för með sjálfum KK og hans Föruneyti, en hann lagði upp í tónleikaferð um landið vorið 2019, tók alla tónleikana upp og valdi svo brot af því besta og við fáum að heyra upptökur frá þremur mismunandi stöðum í Konsert. Byrjum í Bæjarbíói í Hafnarfirði 23. mars 2019, förum svo til Vestmannaeyja í Alþýðuhúsið (29. mars) og endum svo á Græna Hattinum á Akureyri 13. apríl 2019.

Með KK voru Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Guðmundur Pétursson á gítar, Sölvi Kristjánsson (sonur KK) á bassa og Kristinn Snær Agnarsson á trommur.

Var aðgengilegt til 11. mars 2022.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,