15:03
Sögur af landi: Endurlit
37. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 15. janúar 2017: Í þætti dagsins ætlum við að skyggnast inn í netheima. Líf okkar flestra markast í síauknu mæli af stafrænni starfsemi. Verslun og viðskipi, upplýsingastreymi, fréttir og skemmtan eru allt hlutir sem hafa færst meira og minna yfir á netheima. Í Sögum af landi í dag höfum við lagt snörur okkar fyrir fólk sem veit sitt hvað um hina ýmsu kima netsins. Innslög unnu: Dagur Gunnarsson, Rögnvaldur Már Helgason og Þórgunnur Oddsdóttir.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,