07:03
Morgunvaktin
Rússland og Úkraína, Carl Sæmundsen og háa C-ið

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Fjögur ár verða í næstu viku frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu. Viðræður milli ríkjanna tveggja um frið héldu áfram í vikunni án árangurs. Hver er staða Rússlands eftir þessi fjögur ár, ekki bara af stríði heldur líka refsiaðgerðum? Hvernig stendur efnahagurinn? Við ræddum við Jón Ólafsson prófessor.

Við fjölluðum líka um Carl Sæmundsen. Hann var stórmerkilegur maður, frá Blönduósi en bjó áratugum saman í Kaupmannahöfn. Hann gaf Alþingi húseignina við Östervoldgade í Höfn - þar bjuggu Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir á þriðju hæðinni. 60 ár eru síðan Carl færði íslensku þjóðinni þessa rausnarlegu gjöf.

Í umfjöllun um sígilda tónlist fórum við upp á sjálft háa c-ið tenóranna. Það er vitað hvar og hvenær það heyrðist fyrst og úr hvers barka. Magnús Lyngdal sagði okkur þessa sögu í dag og auðvitað heyrðum við tóndæmi.

Tónlist:

Laufey - Haunted.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,