09:05
Svona er þetta
Gunnar Helgi Kristinsson
Svona er þetta

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf. Gestur þáttarins er er Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Gunnar Helgi hefur sent frá sér rit um Elítur og valdakerfi á Íslandi. Í ritinu heldur Gunnar Helgi því fram að þróun hafi orðið á Íslandi frá valdakerfi þar sem embættismenn og önnur elíta með sterk ættartengsl réði á nítjándu öld til flokksræðis á þeirri tuttugustu, þar sem stjórnmálaelítan fór með völdin, en á síðustu áratugum hafi orðið til eins konar margræði þar sem ólíkir elítuhópar í samfélaginu fari með völdin. Rætt er við Gunnar Helga um þessa þróun, kosti og galla ólíkra valdakerfa, áhrif og styrk ólíkra hópa og hlutverk lýðræðisins í valdakerfi samtímans.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,