12:03
Hádegið
G7-ráðstefna og skattamál SigurRósar
Hádegið

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Ráðstefna G7-ríkjanna hefst á morgun og stendur yfir fram á sunnudag. Þá funda leiðtogar sjö stærstu iðnríkja heims: Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japan, Kanada og Þýskalands - um stóru málin: svo sem loftslagsvána, peninga og viðskipti, heimsfaraldur, Kína og - þrátt fyrir andstöðu breska forsætisráðherrans - Brexit og málefni Norður-Írlands. Leiðtogar ríkjanna leggja nú leið sína til Cornwall í Bretlandi og undirbúa sig fyrir fundahöld næstu daga. Við förum yfir það helsta.

Þann 25. maí síðastliðinn voru núverandi og fyrrverandi liðsmenn hljómsveitarinnar SigurRósar sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um meiriháttar skattsvik. Þá var Jón Þór Birgisson söngvari sveitarinnar einnig sýknaður af ákæru um skattsvik í tengslum við samlagsfélagið Frakk. Og ríkinu var gert að greiða sakarkostnað. En Héraðssaksóknari hefur nú áfrýjað þessari niðurstöðu, og þessu flókna máli því ekki lokið enn.

Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.

Var aðgengilegt til 10. júní 2022.
Lengd: 58 mín.
,