08:05
Á tónsviðinu
Tónlist eftir Carl Maria von Weber
Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Í þættinum verður leikin tónlist eftir Carl Maria von Weber. Árið 1808 samdi hann sönglag sem hann tileinkaði söngkonunni Gretchen Lang, en hann var ástfanginn af henni. Gretchen söng aðalhlutverkið í óperu Webers, „Silvana“, tveimur árum síðar. En hún endurgalt ekki tilfinningar Webers og hann sneri sér að annarri söngkonu, Caroline Brandt, sem einnig fór með hlutverk í „Silvana“. Caroline giftist Weber og hann tileinkaði henni verk sitt „Boðið upp í dans“ sem flutt verður í þættinum. Einnig verður leikinn fagottkonsert í F-dúr sem Weber samdi árið 1811. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Var aðgengilegt til 21. ágúst 2021.
Lengd: 51 mín.
e
Endurflutt.
,