13:02
Samfélagið
Fjarnám og fjar-veruleiki í fræðasamfélaginu. Árið í vísindum.
Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Samfélagið sendir fyrri hluta þáttar út frá Akureyri. Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við Auðbjörgu Björnsdóttur, forstöðumann kennslumiðstöðvar og Þórodd Bjarnason, prófessor í félagsfræði. Spjallað um fjarnám og hvað þessi "tæknihraðall" á stafrænum samskiptum í covid hafi að segja með þróun fjarnáms. Einnig rætt um hvernig áhrif þetta hefur haft á landsbyggðina, og spá í hvað mun taka við, nú þegar er byrjað að bólusetja og þessi fjar-veruleiki fer að líða undir lok.

Edda Olgudóttir fer yfir árið í vísindum.

Gleðilegt ár!

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,