Vika Sex
Þema VikuSex 2021 er Kynlíf. Hér má finna stutt fræðslumyndbönd þar sem félagsmiðstöðvastarfsfólk í Reykjavík veltir fyrir sér og ræðir saman um ýmsa þætti sem snúa að kynlífi og kynheilbrigði. Í hverju myndbroti velta þau fyrir sér spurningu og eru þær eftirfarandi: Hvað er kynlíf? Hvenær er maður tilbúinn til að byrja að stunda kynlíf og hvernig veit maður það? Hvað þýðir að kynlífi fylgi ábyrgð? Af hverju er klám ekki góð kynfræðsla? og Af hverju er sjálfsfróun sniðug? Einnig eru í einu myndbandinu veitt góð ráð til þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref varðandi kynlífsreynslu með öðru fólki.